Drengurinn hennar Maríu

Um þetta leyti skipaði Ágústus keisari í Róm svo fyrir að allir þegnar í víðlendur ríki hans skyldu borga skatt. Þess vegna varð hver maður að láta skrásetja sig á þeim stað eða í þeirri borg þar sem hann átti ættir sínar. Jósef varð því að fara um langan veg, eða alla leið frá Nasaret í Galíleu og til borgarinnar Betlehem í Júdeu, til að skrásetja sig og Maríu sem  var með honum.

En María var alveg komin að því að fæða barnið sitt. Þetta langa ferðalag var afar þreytandi fyrir hana.

Þegar þau komu loksins til Betlehem var gistihúsið yfirfullt og hvergi hægt að fá inni. Jósef og María voru fátæk. Þau fengu að gista úti í gripahúsi, en þar áttu uxinn og asninn bása sína.

Þegar þau komu þangað var María við það að fæða. Og hún fæddi son sinn, klæddi hann og lagði í jötu.

Þessa sömu nótt voru hirðar úti í haga skammt frá Betlehem og gættu þeir hjarðar sinnar. En skyndilega varð himinninn albjartur sem dagur væri og engill stóð fyrir framan þá. Hirðarnir urðu mjög hræddir.

Engillinn mælti: ,,Verið ekki hræddir. Ég flyt ykkur miklar gleðifréttir, sem allir munu fagna. Í dag er frelsari fæddur í Betlehem. Hann er Messías, Drottinn. Og þetta er merkið sem þið skuluð fara eftir: Þið munið finna ungbarn í jötu.”

Skyndilega var með englinum fjöldi annarra engla sem lofuðu Guð og sögðu:

Dýrð sé Guði í upphæðum
og friður á jörðu hjá þeim mönnum
sem hann elskar.

Þegar englarnir voru farnir frá þeim til himna sögðu hirðarnir hver við annan: ,,Við skulum fara til Betlehem og sjá það sem hefur gerst og Drottinn lét okkur vita um.”

Þeir héldu af stað í skyndi og fundu Maríu og Jósef og nýfædda barnið sem lá í jötu. Þegar þeir höfðu séð allt þetta sögðu þeir frá því sem englarnir höfðu sagt þeim um þetta barn. Allir þeir sem hlýddu á hirðana urðu forviða yfir frásögn þeirra. María hlustaði vel á og geymdi hvert orð í hugskoti sínu. Hún leiddi oft hugann að því hvað þetta þýddi.

Hirðarnir sneru aftur til hjarðar sinnar og þökkuðu Guði fyrir það sem þeir höfðu séð og heyrt. Allt var þetta eins og englarnir höfðu sagt.

María og Jósef gáfu drengnum sínum nafnið Jesús eins og engillinn hafði mælt fyrir um.

To Top